Kiel tapaði í Zagreb

Aron Pálmarsson fagnaði ekki í Zagreb í kvöld.
Aron Pálmarsson fagnaði ekki í Zagreb í kvöld. AFP

Þýska meistaraliði THW Kiel, sem Alfreð Gíslason þjálfar, tapaði fyrir Prvo Zagreb í fyrsta leik liðanna í riðalkeppni Meistaradeildar Evrópu í handknattleik er liðin mættust í Zagreb í kvöld. Lokatölur, 27:25, eftir að Kiel var fimm marka forskot í hálfleik, 15:10.

Aron Pálmarsson var markahæstur hjá Kiel með fjögur mörk eins og Christian Sprenger og Marko Vujin. 

Róbert Gunnarsson og félagar hans í PSG unnu HC Metalurg, 27:22, í Meistaradeildinni í dag en leikið var í Makedóníu. Róbert skoraði eitt mark í leiknum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert