Sigurbergur Sveinsson og samherjar í HC Erlangen náðu með mikilli baráttu jafntefli við Füchse Berlín, liðið sem Dagur Sigurðsson þjálfar, í þýsku 1. deildinni í handknattleik í kvöld, 26:26. Leikið var á heimavelli Berlínarliðsins, Max-Schmeling-Halle.
Erlangen-liðið skoraði tvö síðustu mörk leiksins en það var fjórum mörkum undir í hálfleik, 16:12.
Sigurbergur skoraði þrjú mörk í leiknum.
Füchse er í 10. sæti með níu stig að loknum níu leikjum. Erlangen, sem er nýliði í þýsku 1. deildinni, situr í 16. sæti með sex stig eftir 10 leiki en 19 lið eru í deildinni í vetur.