Tandri Már Konráðsson lék prýðisvel með Ricoh, nýliðum sænsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik í kvöld, þegar liðið gerði jafntefli við Skövde, 21:21, á heimavelli í kvöld.
Tandri skoraði átta mörk og var markahæstur í sínu liði og það ekki í fyrsta sinn á keppnistímabilinu. Ricoh, sem er í 12. sæti af 14 liðum deildarinnar með fimm stig úr átta leikjum, var tveimur mörkum undir að loknum fyrri hálfleik í kvöld, 11:9.