Eftir tvo tapleiki í röð í Meistaradeildinni hrósaði Rhein-Neckar Löwen sigri gegn rússneska liðinu Chekhovskie Medvedi, 34:29, þegar liðin áttust við í SAP Arena-höllinni í Mannheim í kvöld.
Alexander Petersson skoraði 2 mörk fyrir Löwen og Stefán Rafn Sigurmansson 1 en staðan í hálfleik var 16:16.
Löwen hefur 4 stig eftir fjóra leiki í riðlinum. Veszprém er efst með 8 stig og HC Vardar er í öðru sætinu með 7 stig.