Guðjón Valur Sigurðsson skoraði þrjú mörk í dag þegar Barcelona vann sinn áttunda sigur í spænsku 1. deildinni í handknattleik á leiktíðinni.
Barcelona sótti Benidorm heim og vann þriggja marka sigur, 28:25.
Heimamenn byrjuðu mun betur og komust í 11:5, og voru sex mörkum yfir í hálfleik, 16:10. Börsungar breyttu stöðunni hins vegar fljótt í 18:17 í seinni hálfleik, og höfðu jafnað metin þegar 14 mínútur voru til leiksloka, 21:21.
Þegar tvær og hálf mínúta lifðu leiks var staðan 25:25, en Barcelona skoraði þrjú síðustu mörkin og tryggði sér stigin tvö. Liðið er því enn með fullt hús stiga.