Ellefu marka sigur Fylkis

Frá leik Fylkis og HK í kvöld.
Frá leik Fylkis og HK í kvöld. mbl.is/Golli

Fylkir vann í kvöld mikilvægan sigur á HK í Olís-deild kvenna í handknattleik þegar liðin mættust í Fylkishöllinni en talsvert kemur á óvart hve stór hann var því lokatölur urðu 29:18 fyrir Árbæjarliðið.

Fylkir náði með sigrinum HK og Haukum að stigum en liðin eru nú jöfn í fimmta til sjöunda sæti deildarinnar með 8 stig hvert. Ljóst er að harður slagur er framundan um að komast í úrslitakeppnina en þangað fara átta efstu lið deildarinnar.

Mörk Fylkis: Patricia Szölösi 6, Thea Imani Sturludóttir 6, Hildur Björnsdóttir 5, Hafdís Shizuka Iura 3, Ólöf Kristín Þorsteinsdóttir 2, Díana Sigmarsdóttir 2, Rebekka Friðriksdóttir 2, Fanney Finnsdóttir 1, Vera Pálsdóttir 1, Sigrún Birna Arnardóttir 1.

Mörk HK: Hulda Bryndís Tryggvadóttir 5, Emma Havin Sardarsdóttir 3, Sóley Ívarsdóttir 3, Valgerður Ýr Þorsteinsdóttir 3, Fanney Þór Þórsdóttir 2, Sigríður Hauksdóttir 1, Eva Hrund Harðardóttir 1.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert