Carlos Ortega, þjálfari ungverska meistaraliðsins Veszprém sem Aron Pálmarsson gengur til til liðs við um mitt næsta ár, hefur framlengt samning sinn við félagið fram á mitt ár 2017. Ortega hefur stýrt Veszprém síðustu tvö ár með afar góðum árangri.
Undir stjórn Ortega hefur Veszprém fest sig í sessi sem eitt sterkasta félagslið í Evrópu í handknattleik. Það ber höfuð og herðar yfir önnur lið í heimalandinu og komst í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu í vor sem leið.