Jafntefli hjá Íslendingaliðinu

Hörður Fannar Sigþórsson skoraði fjögur mörk í dag.
Hörður Fannar Sigþórsson skoraði fjögur mörk í dag. Morgunblaðið/Golli

Íslendingaliðið Aue sem Rúnar Sigtryggsson þjálfar gerði í dag jafntefli, 28:28, við Hamm-Westfalen í þýsku 2. deildinni í handknattleik.

Árni Þór Sigtryggsson og Hörður Fannar Sigþórsson skoruðu báðir fjögur mörk fyrir Aue og Sigtryggur Rúnarsson tvö, en auk þeirra spilaði Bjarki Már Gunnarsson og fékk eina brottvísun. Markvörðurinn Sveinbjörn Pétursson er einnig á mála hjá félaginu.

Aue er um miðja deild, er í tíunda sætinu af tuttugu liðum með 18 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert