Bjarki Már Elísson átti enn einn stórleikinn fyrir Eisenach í þýsku 2. deildinni í handknattleik í dag þegar hann skoraði 13 mörk í sigri á Baunatal, 30:21.
Bjarki skoraði fimm mörk í fyrri hálfleik en staðan að honum loknum var 15:8, Eisenach í vil. Hann raðaði svo inn mörkum í upphafi seinni hálfleiks þegar Eisenach gerði út um leikinn. Hannes Jón Jónsson var ekki á meðal markaskorara Eisenach í dag.
Eisenach er í 9. sæti deildarinnar með 21 stig en Baunatal er á botninum með 5 stig. Eisenach er sex stigum á eftir Nordhorn sem er í 3. sæti deildarinnar, en þrjú lið geta komist upp í 1. deild.