Sigurganga KIF Kolding undir stjórn Arons Kristjánssonar heldur áfram í danska handboltanum. Í dag vann liðið Bjerringbro - Silkeborg 24:20 í Kaupmannahöfn.
Ólafur Gústafsson kom við sögu, í varnarleiknum í það minnsta, þegar Álaborg vann eins marks útisigur á Tvis Holstebro 24:23. Ólafur fékk eina tveggja mínútna brottvísun í leiknum.
Álaborg er í 2. sæti deildarinnar, sex stigum á eftir KIF Kolding.