Notendur samskiptamiðilsins Twitter voru margir hverjir að farast úr spennu yfir hádramatískum leik FH og Vals sem var að ljúka í undanúrslitum Coca Cola-bikarsins í handknattleik.
FH vann að lokum sigur eftir tvær framlengingar og leikur því til úrslita gegn annað hvort Haukum eða ÍBV en þau lið mætast kl. 20.
Rauða spjaldið fór tvisvar á loft í leik FH og Vals en hægt er að nálgast textalýsingu mbl.is frá leiknum HÉR.
Hér að neðan má sjá nokkur þeirra ummæla sem féllu á Twitter á meðan á leik stóð og strax eftir leik:
Valur tapaði þessum leik. Kúdos á FH. Heilt yfir vel dæmdur leikur. Þvílík spenna #handbolti
— Ásgeir Jónsson (@sonurjons) February 27, 2015
Ísak Rafnsson næsti Héðinn, næsti Hans Guðmundsson, næsti rétthenti Kristján Ara. Líka góður í vörn! #handbolti
— Sveinn Arnarsson (@Sveinn_A) February 27, 2015
Ekki langt síðan ég hefði ALDREI sagt þetta en handbolti getur verið alveg helvíti skemmtilegur #handbolti #FH #Valur
— Þór Símon (@Simon_sport) February 27, 2015
FH-ingar augljoslega í bláum og gylltum búningum #handbolti
— Sindri Freyr (@sindrifg) February 27, 2015
Mínir heimildarmenn segja að þetta hafi verið borðleggjandi rautt spjald á Andra Berg #handbolti
— Orri Sigurðsson (@orrisigurdsson) February 27, 2015
Andri Berg: "why always me?" Hættir ekki að vera skúrkurinn #handbolti #cocacolabikarinn
— Viktor Alex (@vikarag) February 27, 2015
Ótrúlegt svo ekki sé minna sagt!
— Viggó Kristjánsson (@kristjansson73) February 27, 2015
Grunaði ekki Gvend. Vil fá FH og Hauka í bikarúrslitum.#Fjörðurinnáhvolf
— Guðmundur Hilmarsson (@GummiHilmars) February 27, 2015
Móðir allra íþrótta !!! #handbolti #ruv
— Haukur Þorsteinsson (@hawk_attacks) February 27, 2015
mætti halda að Ási sé búinn að spila 1000 svona leiki #reynsli #BigGameÁsi
— Aron Pálmarsson (@aronpalm) February 27, 2015
Án vafa skemmtilegasti handboltaleikur sem ég hef lýst!! Heldur allt áfram, ÍBV - Haukar á RÚV eftir smá! #cocacolabikarinn
— Haukur Harðarson (@HaukurHardarson) February 27, 2015