ÍBV varð í dag bikarmeistari í annað sinn í handknattleik karla eftir að Íslandsmeistararnir unnu FH, 23:22, í æsispennandi úrslitaleik í Coca Cola-bikarnum í Laugardalshöll. Nú eru liðin 24 ár frá því að ÍBV varð bikarmeistari í fyrsta sinn en leikurinn í dag var aðeins annar úrslitaleikur ÍBV í bikarkeppninni í karlaflokki.
Gleði leikmanna ÍBV var ósvikin og eins á annað þúsund stuðningsmanna liðsins þegar bikarinn fór á loft síðdegis í Laugardalshöll.
Meðfylgjandi myndskeið var tekið þegar bikarinn fór á loft og leikmenn og stuðningsmenn fögnuðu ákaft undir hinum sigilda lagi sigurvegarans.