Það var mikið um dýrðir á Básaskersbryggjunni í Vestmannaeyjum í gærkvöld þegar nýkrýndir bikarmeistarar ÍBV komu til Eyja með Herjólfi.
Fjölmargir stuðningsmenn ÍBV komu með liðinu til Eyja á ellefta tímanum í gærkvöld og á Básaskersbryggjunni tók fjöldi fólks á móti bikarmeisturunum og hylltu þá en ÍBV vann sinn annan bikarmeistaratitil í Laugardalshöllinni í gærkvöld eftir sigur á FH í úrslitaleik.
Á myndbandinu hér að neðan sem Trausti Hjaltason birtir á facebook síðu sinni má stuðið og stemninguna í Eyjum.