Rúnar Kárason skoraði 8 mörk og var markahæstur í liði Hannover-Burgdorf þegar lið hans beið lægri hlut fyrir lærisveinum Geirs Sveinssonar í Magdeburg, 34:28.
Rúnar skoraði 4 af mörkum sínum úr vítaköstum en Ólafur Andrés Guðmundsson lék ekki með Hannover vegna meiðsla.
Meistararnir í Kiel endurheimtu toppsætið með 13 marka útisigri gegn Friesenheim, 33:20. Aron Pálmarsson skoraði 1 mark fyrir Kiel en markahæstur í liði Kiel var Króatinn Domagoj Duvnjak með 10 mörk.
Kiel er með 44 stig í efsta sætinu, Rhein-Neckar Löwen er með 42 og Magdeburg er í þriðja sætinu með 37 stig.