Stórskyttan Adam Haukur Baumruk leikur ekki með Haukum í Olís-deildinni í handknattleik næstu vikurnar vegna höfuðmeiðsla en hann fékk tvö högg á höfuðið í leik gegn Aftureldingu fyrir 12 dögum. Frá þessu greindi vefmiðillinn fimmeinn.is í gærkvöld.
Það er því útlit fyrir að Adam missi af þeim sjö leikjum sem Haukar eiga eftir í deildinni á næstu fjórum vikum.