Rut Jónsdóttir, landsliðskona í handknattleik, og samherjar hennar í Randers töpuðu naumlega á heimavelli í kvöld fyrir toppliði dönsku úrvalsdeildarinnar, Esbjerg, 30:29, eftir að hafa verið tveimur mörkum undir að loknum fyrri hálfleik, 18:16.
Rut var næst markahæst hjá Randers með fimm mörk. Randers er í fimmta sæti þegar ein umferð er eftir af deildarkeppninni og á liðið í harðri baráttu um að komast í úrslitakeppnina.