Guðmundur Árni Ólafsson, hornamaður hjá Mors-Thy, skoraði mark mánaðarins í dönsku úrvalsdeildinni í handknattleik í síðasta mánuði, en tekin hafa verið saman myndskeið með fimm glæsilegustu mörkunum sem skoruð voru í deildinni.
Mark Guðmundar Árna er afar glæsilegt en í aðdraganda þess stekkur hann inn úr hægra horninu og grípur sendingu samherja í loftinu og kastar boltanum í mark andstæðinganna, sannkallað sirkusmark.
Markið er það síðasta af fimm sem eru í meðfylgjandi myndskeiði.