Frábært að tryggja sætið

Karen Knútsdóttir fyrirliði íslenska landsliðsins í handknattleik og leikmaður Nice …
Karen Knútsdóttir fyrirliði íslenska landsliðsins í handknattleik og leikmaður Nice í Frakklandi. mbl.is/Kristinn

„Þetta er í fyrsta sinn í sögu Nice-liðsins sem það tryggir sér sæti í úrslitakeppninni,“ segir Karen Knútsdóttir, fyrirliði íslenska landsliðsins í handknattleik og leikmaður franska 1. deildarliðsins Nice, en liðið vann sér í fyrrakvöld sæti í sex liða úrslitakeppni um franska meistaratitilinn. Enn eru tvær umferðir eftir.

Nice vann Toulon, 25:23, á útivelli og situr í fimmta sæti. „Það var frábært að tryggja sætið í úrslitakeppninni í góðum tíma áður en deildarkeppninni lýkur,“ sagði Karen við Morgunblaðið í gær en hún skoraði tvö mörk í viðureigninni í fyrrakvöld.

„Við höfum leikið mjög vel eftir áramótin og vonandi verður framhald á,“ segir Karen sem er afar sátt við veruna hjá Nice en hún samdi við liðið á liðnu sumri til tveggja ára.

Nánar er rætt við Karen og árangur liðs hennar í íþróttablaði Morgunblaðsins sem kom út í morgun.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert