Vilja framlengja við Þóri

Þórir Hergeirsson.
Þórir Hergeirsson. AFP

Norska handknattleikssambandið vill framlengja samning sinn við Þóri Hergeirsson en Þórir hefur stýrt kvennalið Noregs með frábærum árangri frá árinu 2009.

„Við höfum rætt saman en þetta ekkert að stressa mig upp. Núgildandi samningur minn rennur út eftir Ólympíuleika á næsta ári svo við höfum góða tíma,“ segir Þórir við norska blaðið Verdens Gang en norska handknattleiksambandsins vill semja við hann fram yfir Ólympíuleikana í Tokyo 2020.

Norðmenn eru ríkjandi ólympíu- og Evrópumeistarar undir stjórn Þórir og þá hömpuðu þeir heimsmeistaratitlinum undir hans stjórn árið 2011

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert