Hefðum þegið 2. sæti fyrir mót

„Við erum virkilega ánægðir að tryggja 2. sætið í kvöld. Vonandi fáum við hagstæð úrslit úr öðrum leikjum þannig að við getum kannski ógnað Valsmönnum eitthvað en 2. sætið fyrir mót hefðum við tekið,“ sagði Einar Andri Einarsson þjálfari Aftureldingar sem vann frábæran átta marka útisigur á ÍBV 31:23.

Með sigrinum í kvöld tryggði liðið sér 2. sætið í deildinni en þar hefur liðið 37 stig, sjö meira en ÍR sem leikur í kvöld gegn Val.

Sjá má viðtalið við Einar Andra eftir leikinn hér í ofanverðu myndskeiði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert