Tryggja Valsmenn sér deildarmeistaratitilinn?

Guðmundur Hólmar Helgason fagnar sigri.
Guðmundur Hólmar Helgason fagnar sigri. mbl.is/Eva Björk Ægisdóttir

Valsmenn geta tryggt sér deildarmeistaratitilinn í Olís-deild karla í handknattleik í kvöld.

Fari Valsmenn með sigur af hólmi gegn ÍR-ingum í Austurbergi og Afturelding tapar fyrir Íslandsmeisturum ÍBV í Eyjum er ljóst að Valsmenn vinna deildarmeistaratitilinn. Þeir hafa þriggja stiga forskot á Aftureldingu þegar þrjár umferðir eru eftir.

Þrír leikir fara fram í deildinni í kvöld en leikirnir eru:

18.00 ÍBV - Afturelding
19.30 FH - Fram
19.30 ÍR - Valur

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert