ÍBV og HK áttust við í Vestmannaeyjum í kvöld í næst síðustu umferð Olís-deildar karla í handbolta. HK-ingar unnu leikinn með einu marki 38-37 en staðan í hálfleik var 19-18 fyrir HK. Markahæstur í liði Eyjamanna var Theodór Sigurbjörnsson en hann skoraði 7 mörk. Hjá HK var það Leó Snær Pétursson sem var markahæstur en hann skoraði 16 mörk.
Leikurinn var í járnum allan leikinn og lítið um varnir hjá báðum liðum. HK-ingar börðust allann tímann og uppskáru að lokum sigur eins og fyrr segir 38-37.
ÍBV | 37:38 | HK | Opna lýsingu Loka | |
---|---|---|---|---|
60. mín. Leik lokið HK-INGAR VINNA!! | ||||
Augnablik — sæki gögn... |