Gríðarlegur fögnuður Mosfellinga (myndir)

Það braust út gríðarlegur fögnuður þegar Afturelding lagði ÍR í dramatískum oddaleik í undanúrslitum í Olís-deildinni í handknattleik að Varmá í dag.

Kristinn Ingvarsson ljósmyndari Morgunblaðið var á svæðinu og fangaði stemninguna hjá leikmönnum og stuðningsmönnum Aftureldingar þegar sigurinn var í höfn.

Afturelding mætir Haukum í úrslitaeinvígi og fer fyrsti leikurinn fram að Varmá þann 6. maí.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert