„Getum miklu betur en þetta“

Helena Rut Örvars­dótt­ir hélt sóknarleik Stjörnunnar uppi í leiknum gegn Fram í kvöld. Hún skoraði 10 mörk eða tæplega helming marka Garðabæjarliðsins en það dugði ekki til. Fram hafði betur og er komið í 2:1 í einvígi liðanna í undanúrslitum Olís-deildarinnar.

„Mér fannt við vera inni í leiknum allan tímann en við vorum klaufar og misstum boltann á klaufalega hátt. Við getum miklu betur en þetta og við munum sýna það í næsta leik. Stjarnan mun koma til baka,“ sagði Helena Rut Örvars­dótt­ir við mb.is eftir leikinn en viðtalið við hana er á meðfylgjandi myndskeiði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert