„Mættum tilbúnar til leiks“

Marthe Sördal og samherjar hennar í Fram-liðinu hrósuðu sigri gegn Stjörnunni í þriðja leik liðanna í undanúrslitum Olís-deildarinnar í handknattleik í kvöld og eru þar með komnar í 2:1 í einvíginu.

„Við vorum mjög ósáttar við leik okkar í Garðabænum á laugaraginn en við náðum að svara fyrir það í kvöld. Við mættum tilbúnar til leiksog baráttan var góð. Vörnin og markvarslan voru þeir hlutir sem skiluðu okkur sigrinum og við vonumst eftir því að gera út um einvígið í næsta leik í Garðabænum,“ sagði Marthe Sördal við mbl.is en allt viðtalið við hana má sjá í meðfylgjandi myndskeiði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert