Rhein-Neckar Löwen minnkaði forskot Kiel í toppsæti þýsku 1. deildarinnar niður í fjögur stig í kvöld þegar liðið hrósaði sigri gegn Lübbecke, 27:25.
Alexander Petersson lék ekki með Löwen en Stefán Rafn Sigurmannsson komst ekki á blað.
Rúnar Kárason skoraði 3 mörk fyrir Hannover-Burgdorf sem tapaði fyrir Lemgo á útivelli, 27:23. Ólafur Guðmundsson náði ekki að skora fyrir Hannover.