Rhein-Neckar Löwen átti ekki í vandræðum með lærisveina Dags Sigurðssonar hjá Füchse Berlin þegar liðin mættust í þýsku 1. deildinni í handknattleik í kvöld. Lokatölur urðu 34:21, Ljónunum í hag.
Stefán Rafn Sigurmannsson skoraði tvö mörk fyrir Ljónin í kvöld, en Alexander Petersson var ekki með. Staðan í hálfleik var 15:8.
Löwen er nú tveimur stigum á eftir Kiel í öðru sæti deildarinnar en Berlínarrefirnir eru í sjötta sætinu.