Guðjón Valur Sigurðsson og samherjar í Barcelona geta bætt enn einni skrautfjöðrinni í hatt í sinn í dag þegar þeir leika til úrslita í spænsku bikarkeppninni í handknattleik. Barcelona, sem var Evrópumeistari fyrir viku, vann Puente Genil, 34:23, í undanúrslitaleik í gær.
Barcelona mætir Granolles í úrslitaleiknum í dag en Granolles vann Juanfersa Gijon, 28:26, í hinni viðureign undanúrslitanna í gær.
Barcelona vann spænsku deildina á dögunum með fullu húsi stiga. Granolles hafnaði í öðru sæti, 17 stigum á eftir.