Ásgeir þjálfar hjá FH

Ásgeir Gunnarsson.
Ásgeir Gunnarsson. Ljósmynd/FH

Stjórn handknattleiksdeildar FH hefur ráðið Ásgeir Gunnarsson sem aðstoðarþjálfara meistaraflokks kvenna og þjálfara unglingaflokks kvenna til næstu tveggja ára.

Í fréttatilkynningu frá FH segir;

Ásgeir hefur undanfarin ár þjálfað yngri flokka FH með miklum ágætum sem og þjálfað meistaraflokk karla hjá ÍH og sýnt það og sannað að hann er öflugur þjálfari þrátt fyrir ungann aldur.

„Við erum gríðarlega ánægð með þessa ráðningu, þetta er skref í þá átt sem við viljum fara með stelpurnar okkar. Við teljum mikilvægt að hafa þjálfara sem þjálfar bæði unglingaflokk og þjálfar meistaraflokk. Þetta fyrirkomulag reyndist okkur vel hjá meistaraflokki karla síðastliðinn vetur og því ákváðum við að fara sömu leið kvenna megin. Nafni minn er líka með risastórt FH hjarta og mjög metnaðarfullur fyrir hönd félagsins sem er okkur mikilvægt,“ segir Ásgeir Jónsson formaður handknattleiksdeildar FH eftir undirritun dagsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert