U19 ára landslið karla í handknattleik vann í kvöld Svíþjóð í úrslitaleik opna Evrópumeistaramótsins sem haldið er í Svíþjóð. Lokatölur urðu 31:29 sem þýðir að Ísland vann alla leiki sína á mótinu.
Svíþjóð var yfir í hálfleik 13:16 og komst í 18:14 stöðu áður en Íslendingar tóku við sér. Lokamínuturnar voru æsispennandi þar sem íslensku strákarnir höfðu að lokum betur. Egill Magnússon var markahæstur í íslenska liðinu með 10 mörk.
Íslenska liðið átti frábært mót og fór í gegnum riðlakeppnina og milliriðilinn með fullt hús stiga.