Fram mætir Grude Autoherc frá Bosníu og Hersegóvínu í 2. umferð EHF-bikarsins í handknattleik kvenna. Dregið var í 2. umferð Evrópukeppninnar á skrifstofu EHF í Vín í dag.
Fram endaði í öðru sæti í Olís-deildinni og féll út í undanúrslitum úrslitakeppninnar. Liðið mun takast á við HZRK Grude Autoherc, sem er bosnískur meistari, í 2. umferð EHF-keppninnar.
Sigurliðið í þessu einvígi mætir Roman frá Rúmeníu í 3. umferðinni.