Handknattleikskonan Hildur Marín Andrésdóttir hefur skrifað undir tveggja ára samning við FH. Hún kemur til liðsins frá KA/Þór en hún er uppalinn Akureyringur. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá FH.
Hildur Marín hefur einnig leikið með Gróttu, Fram og Val á ferlinum. Hún er fjölhæfur leikmaður og býr yfir mikilli reynslu. Hún er miðjumaður en hún getur engu að síður spilað allar stöður vallarins.