Bara að skora

„Bara að skora. Það var það eina sem fór í gegnum huga minn," sagði  Arnar Snær Magnússon sem skoraði sigurmark Fram, 23:22, á síðustu sekúndum leiksins við Gróttu á heimavelli í kvöld í Olís-deild karla í handknattleik í kvöld.

Framarar unnu boltann þegar um tíu sekúndur voru til leiksloka og geystust upp og Arnar Snær skoraði markið mikilvæga. „Ég hugsaði ekkert annað en að skora eftir að ég fékk sendinguna frá Óla," sagði hinni ungi Arnar Snær sem skoraði tvö mörk í leiknum og þau heldur betur vógu þungt þegar upp var staðið.

Nánar er rætt við Arnar Snæ á meðfylgjandi myndskeiði. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert