Stjarnan sigraði Fjölni, 26:20, í uppgjöri efstu liða 1. deildar karla í handknattleik sem fram fór í Dalhúsum í Grafarvogi í kvöld.
Stjarnan náði þar með fjögurra stiga forskoti, er með 18 stig en Fjölnir og Selfoss eru með 14 stig hvort. Selfyssingar mæta Þrótti annað kvöld og geta saxað aftur á Garðbæingana. Þróttarar eru með 10 stig í fjórða sætinu.
Mörk Fjölnis: Björgvin Páll Rúnarsson 6, Sveinn Þorgeirsson 4, Brynjar Loftsson 4, Kristján Örn Kristjánsson 2, Aðalsteinn Örn Aðalsteinsson 2, Ingvar K. Guðmundsson 1, Sveinn Jóhannsson 1.
Mörk Stjörnunnar: Starri Friðriksson 8, Ari Pétursson 4, Sverrir Eyjólfsson 4, Andri Hjartar Grétarsson 4, Hörður Kristinn Örvarsson 2, Eyþór Már Magnússon 2, Guðmundur Sigurður Guðmundsson 1, Finnur Jónsson 1.