Örvhenta skyttan Jóhann Gunnar Einarsson sneri aftur með Aftureldingu í kvöld, eftir að hafa verið frá keppni síðan í vor vegna meiðsla, þegar liðið sló Víking út í 16-liða úrslitum Coca Cola-bikarsins í handbolta.
Afturelding var einu marki yfir í hálfleik, 15:14, en skellti svo í lás í seinni hálfleik. Víkingar skoruðu aðeins tvö mörk á 25 mínútum í seinni hálfleiknum, og lentu 22:16 undir, en lokatölur urðu 22:20.
Árni Bragi Eyjólfsson var markahæstur hjá Aftureldingu með 6 mörk og Jóhann Jóhannsson skoraði fjögur. Jóhann Gunnar skoraði eitt í endurkomunni. Hjá Víkingum var Jóhann Reynir Gunnlaugsson markahæstur með 5 mörk og Ægir Hrafn Jónsson skoraði fjögur.