„Mér finnst að okkur vegið á þessum kafla“

Halldór Jóhann Sigfússon, þjálfari FH, sagðist í samtali við mbl.is telja að vegið hafi verið að FH-ingum í síðari hálfleik þegar liðið féll úr Coca Cola-bikarkeppni HSÍ á Seltjarnarnesi í gærkvöldi. 

Spurður um slæman kafla FH-liðsins í upphafi síðari hálfleiks þar sem Grótta skoraði fimm mörk í röð og jafnaði leikinn 11:11 sagði Halldór „allt hafa breyst“ í síðari hálfleik og átti þar við línuna í dómgæslunni. 

Halldór sagðist vera mjög svekktur yfir úrslitunum þegar mbl.is tók hann tali að leiknum loknum en Grótta sigraði 28:23 eftir framlengingu. Hann sagði virkilega sárt að hafa ekki náð að ljúka síðustu sókninni í venjulegum leiktíma með marki en Grótta var þá með leikmann út af í kælingu. 

Viðtalið við Halldór er að finna í meðfylgjandi myndskeiði.

Halldór Jóhann Sigfússon, þjálfari FH.
Halldór Jóhann Sigfússon, þjálfari FH. mbl.is/Eva Björk Ægisdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert