Sara Dögg Jónsdóttir stóð fyrir sínu í marki Fylkis í spennuleik Gróttu og Fylkis í Olís-deild kvenna í kvöld en Fylkiskonur þurftu að játa sig sigraða 25:23 eftir að hafa verið yfir 21:20.
„Eins og oft áður þá nýttum við ekki færin. Við lengst af undir í leiknum en fengum þó fullt af tækifærum til þess að jafna. Okkar mistök drápu okkar möguleika en við áttum mjög góða möguleika á sigri í þessum leik. Þær eru í fyrsta sæti í deildinni en við í áttunda en munurinn á liðunum er þó ekki meiri en þetta“ sagði Sara við mbl.is en hún var ánægðari með vörnina heldur en sóknina.
„Við prófuðum að vera frekar aftarlega í vörninni og mér fannst það ganga ágætlega. Vörnin var fín.“