Haukar og Afturelding áttust við í 8-liða úrslitum Coca Cola bikarkeppni karla í handknattleik í Schenker-höllinni í Hafnarfirði í dag. Haukar fóru þriggja marka sigur af hólmi og tryggðu sér þar af leiðandi sæti í undanúrslitum keppninnar.
Lokatölur í leiknum urðu 30:27 Haukum í vil, en Haukar höfðu fjögurra marka forystu í hálfleik.
Janus Daði Smárason var markahæstur í liði Hauka með átta mörk, en Birkir Benediktsson var atkvæðamestur í liði gestanna úr Mosfellsbænum með sex mörk.
Giedrius Morkunas átti afar góðan leik í marki Hauka, en hann varði 18 skot á meðan Davíð Hlíðdal Svansson varði 11 skot í marki Aftureldingar og Pálmar Pétrusson eitt.
Haukar | 30:27 | Afturelding | Opna lýsingu Loka | |
---|---|---|---|---|
60. mín. Leik lokið | ||||
Augnablik — sæki gögn... |