Fylkir og Fram mættust í átta liða úrslitum Coca Cola bikars kvenna í Fylkishöllinni kvöld. Fylkir tryggði sér sæti í undanúrslitum keppninnar með þriggja marka sigri.
Fylkisliðið hafði yfirhöndina lungann úr fyrri hálfleiknum, Fram komst til að mynda aðeins einu sinni yfir, en jafnt var í hálfleik.
Fylkir náðu góðu forskoti um miðbik seinni hálfleiks og hafði mest fjögurra marka forystu. Þá forystu lét Fylkisliðið ekki af hendi og innbyrti að lokum þriggja marka sigur. Lokatölur í leiknum urðu 22:19 Fylki í vil.
Thea Imani Sturludóttir og Patricia Szölözi voru markahæstar í liði Fylkis með sjö mörk hvor, en Ragnheiður Júlíusdóttir var langatkvæðamest í liði gestanna úr Safamýrinni með tíu mörk.