Akureyringar unnu gríðarmikilvægan sigur á ÍR í kvöld, 22:21, í Olís-deild karla í handknattleik í háspennuleik tveggja afar ólíkra hálfleika í KA-heimilinu á Akureyri.
Sá fyrri var svartur með aragrúa mistaka, leiðinlegum og hægum handbolta. Sá seinni bauð upp á meiri hraða, dramatík og spennu. Eftir æsilegar lokamínútur voru það heimamenn sem fögnuðu sigri, 22:21. ÍR gat jafnað metin í lokasókninni en Tomas Olason varði síðasta skot gestanna.
Akureyri kom sér betur úr botnbaráttunni og er mú með 19 stig en staða ÍR versnaði til muna. Liðið situr áfram í fallsæti með 12 stig og er fjórum stigum á eftir næsta liði, sem er FH.
Akureyri | 22:21 | ÍR | Opna lýsingu Loka | |
---|---|---|---|---|
60. mín. Akureyri tekur leikhlé Úrslitasóknin er framundan. | ||||
Augnablik — sæki gögn... |