ÍBV og FH áttust við í 20. umferð Olís deildar karla í handbolta í Vestmannaeyjum í kvöld. Eyjamenn unnu eins marks sigur 20:19 eftir þvílíka dramatík þar sem að allt ætlaði um koll að keyra.
Í fyrri hálfleik var jafnræði með liðunum. Eyjamenn alltaf skrefinu á undan en jafnt í hálfleik, staðan 9:9. Þá hafði Stephen Nielsen varið 14 skot.
Seinni hálfleikur var í járnum. Liðin skiptust á að hafa forystu en úrslitin réðust á lokamínútum leiksins en Elliði Snær Viðarsson tryggði ÍBV stigin tvö.
Markahæstur hjá ÍBV var Andri Heimir Friðriksson með 6 mörk . Hjá FH var Einar Rafn Eiðsson atkvæðamestur með 6 mörk.
Ágúst Elí Björgvinsson varði 19 skot í marki FH en Brynjar Darri Baldursson 2. Hjá ÍBV varði Stephen Nielsen 16 skot og Kolbeinn Arnarsson fór á kostum á lokamínútum leiksins og varði 5 skot eða 63% markvarsla.
ÍBV er þá með 21 stig og náði Fram í 3.-4. sætinu, allavega í bili. FH er áfram með 16 stig í áttunda sætinu og er fjórum stigum fyrir ofan ÍR sem er að spila gegn Akureyri á útivelli.