Franska meistaraliðið Paris SG er komið með annan fótinn í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu í handknattleik eftir átta marka sigur, 28:20, gegn HC Zagreb á útivelli í kvöld.
Róbert Gunnarsson komst ekki á blað hjá Parísarliðinu en danska stórskyttan Mikkel Hansen fór mikinn og skoraði 9 mörk, Nikola Karabatic skoraði 6 og þeir Luc Abalou og Igor Vori skoruðu 5 mörk hvor.