Magnús fór í myndatöku

Grétar Þór Eyþórsson og Magnús Stefánsson.
Grétar Þór Eyþórsson og Magnús Stefánsson. Ljósmynd/Sigfús Gunnar

Vafi leikur á hvort Magnús Stefánsson, fyrirliði ÍBV, geti leikið með liðinu gegn Haukum í þriðja undanúrslitaleik liðanna á Íslandsmótinu í handknattleik á föstudaginn. Magnús hlaut slæma byltu í viðureign liðanna í fyrra kvöld og fékk þungt högg á öxlina. Magnús fór í myndatöku í gær og liggur niðurstaða hennar fyrir í dag.

Auk meiðslanna í öxlinni hefur Magnús ekki bitið úr nálinni eftir að hafa handarbrotnað fyrir fáeinum vikum.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert