Íris Björk í landsliðið að nýju

Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir og Anna Úrsúla Guðmundsdóttir í leik Íslands …
Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir og Anna Úrsúla Guðmundsdóttir í leik Íslands gegn Þýskalandi í undankeppninni. Styrmir Kári

Ágúst Þór Jóhannsson, landsliðsþjálfari íslenska kvennalandsliðsins í handknattleik, hefur valið 19 manna leikmannahóp fyrir lokaleikina í undankeppni EM sem haldin verður í Svíþjóð seinna á þessu ári gegn Frakklandi og Þýskalandi.

Ísland mætir Frakklandi miðvikudaginn 1. júní klukkan 20.00 í Valshöllinni og Þýskalandi sunnudaginn 5. júní klukkan 15.00 að íslenskum tíma í Porsche Arena í Stuttgart. Ísland hefur tvö stig eftir fjóra leiki, en liðið er tveimur stigum á eftir Þýskalandi sem er í öðru sæti riðilsins sem veitir þátttökurétt í lokakeppninni. 

Anna Úrsúla Guðmundsdóttir og Guðrún Ósk Maríasdóttir gátu ekki gefið kost á sér að þessu sinni vegna meiðsla. Þá vekur athygli að Íris Björk Símonardóttir, markvörður Íslandsmeistara Gróttu, er í hópnum að þessu sinni, en hún hefur ekki gefið kost á sér í landsliðið undanfarin ár. 

Lovísa Thompson sem átti ríkan þátt í að tryggja Gróttu Íslansdmeistaratitlinn í ár er verðlaunuð fyrir góða spilamennsku sína með landsliðssæti, en hún er eini nýliðinn í hópnum. 

Leikmannahópur liðsins lítur svona út:

Markmenn:

Elín Jóna Þorsteinsdóttir, Haukar
Florentina Stanciu, Stjarnan
Íris Björk Símonardóttir, Grótta

Aðrir leikmenn:

Arna Sif Pálsdóttir, Nice
Birna Berg Haraldsdóttir, Savehof
Hildigunnur Einarsdóttir, Koblenz
Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir, Selfoss
Karen Knútsdóttir, Nice
Kristín Guðmundsdóttir, Valur
Lovísa Thompson,  Grótta
Ramune Pekarskyte, Haukar
Rut Arnfjörð Jónsdóttir, Randers
Sólveig Lára Kjærnested, Stjarnan
Steinunn Björnsdóttir, Fram
Steinunn Hansdóttir, Skandeborg
Sunna Jónsdóttir, Skrim
Thea Imani Sturludóttir, Fylkir
Unnur Ómarsdóttir, Grótta
Þórey Anna Ásgeirsdóttir, Grótta

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert