Nice, lið Karenar Knútsdóttur og Örnu Sifjar Pálsdóttur, hafnaði í fjórða sæti í efstu deild franska handboltans en liðið lauk keppni í kvöld.
Nice lék seinni leikinn um bronsið við Issy Paris og tapaði á útivelli, 25:20, en Nice hafði unnið fyrri leikinn á heimavelli, 25:24.
Karen átti stórleik og var langmarkahæst hjá Nice með 8 mörk úr 13 skotum en hún lék í 51 mínútu, mest allra. Arna Sif skoraði 2 mörk en hún lék í 42 mínútur.