Anders Eggert, hornamaðurinn snjalli í danska landsliðinu í handknattleik, verður ekki með Dönum á Ólympíuleikunum í Ríó í næsta mánuði.
Eggert hefur dregið sig út úr landsliðshópi Guðmundar Þórðar Guðmundssonar vegna meiðsla í læri en þessi 34 ára gamli vinstri hornamaður hefur leikið stórt hlutverk með danska landsliðinu mörg undanfarin ár.
Guðmundur velur endanlegan 14 manna hóp á mánudaginn í næstu viku.