Strákarnir hans Alfreðs Gíslasonar í þýska liðinu Kiel höfðu betur gegn franska stórliðinu Paris SG, 28:27, í æsispennandi viðureign í Meistaradeild Evrópu í handknattleik í kvöld.
Stórskyttan Christian Zeitz reyndist hetja Kiel, en hann skoraði sigurmarkið þegar um hálf mínúta var til leiksloka.
Svíinn Lukas Nilsson var atkvæðamestur í liði Kiel með 5 mörk en þýski landsliðsmaðurinn Uwe Gensheimer var markahæstur hjá Parísarliðinu með 10 mörk.