Skrifað í „bræði og fljótfærni“

Karl Erlingsson.
Karl Erlingsson. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Karl Erlingsson, aðstoðarþjálfari kvennaliðs Gróttu í handknattleik, hefur beðist innilega afsökunar á ummælum sem hann lét falla í garð dómara og eftirlitsmanns á viðureign Gróttu og Hauka í Olís-deild kvenna sem fram fór á laugardaginn. Karl segir ummæli sína hafa skrifuð í „bræði og fljótfærni.

Sjá frétt mbl.is: „Óþarfi að setja hálf vangefið lið í búning“

„Mig langar að biðjast afsökunar á ummælum mínum í gær , sem voru sett hér inn í bræði og fljótfærni . Það sæmir ekki nokkrum manni að tala svona . Bið enn og aftur viðkomandi aðila innilega afsökunar," segir Karl í færslu sem birtist fyrir skömmu á Facebook-síðu hans. 

Stjórn Handknattleiksdeildar Gróttu harmaði fyrr í morgun ummæli Karls. 

Sjá frétt mbl.is: Harma um­mæli um fá­bjána og vangefna dóm­ara.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert