Ólafur markahæstur í sigri

Ólafur Guðmundsson, leikmaður Kristianstad.
Ólafur Guðmundsson, leikmaður Kristianstad. Ljósmynd/heimasíða Kristianstad

Ólafur Guðmundsson var markahæsti leikmaður Kristianstad með sjö mörk þegar liðið lagði Malmö að velli, 32:24, í sjöttu umferð sænsku efstu deildarinnar í handknattleik karla í dag.

Gunnar Steinn Jónsson skoraði tvö mörk fyrir Kristianstad, en Arnar Freyr Arnarsson komst ekki á blað fyrir liðið. 

Kristianstad sem hefur orðið sænskur meistari síðastliðin tvö keppnistímabil er í þriðja sæti deildarinnar með átta stig eftir þennan sigur.

Kristianstad er tveimur stigum á eftir Sävehof sem trónir á toppi deildarinnar. Kristianstad á leik til góða á Sävehof og getur komist upp að hlið toppliðsins með sigri í þeim leik.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert