Rut Jónsdóttir, landsliðskona í handknattleik, var næstmarkahæst í liði Midtjylland sem fékk vænan skell gegn ungverska liðinu Györi í fyrstu umferð í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í handknattleik kvenna í dag.
Lokatölur í leiknum urðu 31:19 Györi í vild, en Rut skoraði fjögur mörk fyrir Midtjylland. Auk Midtjylland og Györi eru rúmenska liðið CSM Búkarest og rússneska liðið Rostov-Don í C-riðli keppninnar.